La vie en rose...

...glefsur úr lífi íslensk-franskrar fjölskyldu í úthverfi Parísarborgar...

29 maí 2006

Mæðradagur og miðvikudagur

Í gær var mæðradagurinn í Frakklandi. Dagur sem engin börn mega gleyma og öll óska þau samviskusamlega mæðrum sínum til hamingju með daginn og færa þeim gjöf. Góður dagur sum sé - sem eins og allir slíkir dagar nútildags er pumpaður upp af verslanaeigendum og kaffært í auglýsingum. Þrátt fyrir það tókst mér næstum að láta hann fram hjá mér fara, þ.e. þangað til í gær þegar dóttir mín og unnusti minntu mig aldeilis á hann - er þessi dagur nokkuð til á Íslandi? En það var voða notalegt að fá nýtt ilmvatn og gjöf sem Andrea hafði föndrað fyrir mig í skólanum - OG fá svo að sofa til hádegis, mmmmm...

Höfum annars haft í nógu að snúast upp á síðkastið. Francois var boðið í 5 daga lúxusferð til Lissabon, ásamt 600 öðrum starfsmönnum fyrirtækisins, þar sem engu var til sparað. Það hefði nú verið ánægjulegra ef fyrirtækið hefði ákveðið að fara heldur í 3 daga og bjóða mökum með!!! en maður getur víst ekki fengið allt. Svo vorum svo heppin að fá hann Trausta lillebro í heimsókn okkur til mikillar ánægju og yndisauka. Trausti tók nú bara lífinu með ró og var alveg sama þótt ég kynni ekki deili á öllum byggingum sem á leið okkar urðu - ólíkt öðrum sem vildu sífellt vita hvað hitt og þetta hús héti! Er ekki málið bara að njóta andartaksins og anda að sér umhverfinu? Carpe diem? Ég er by the way örugglega lélegasti guide í heimi, fullkomlega áttavillt hvar sem ég er - og það var því þægilegt að hafa ekki kröfuharðan ferðamann mér við hlið!!

Trausti eyddi dágóðum tíma í fuglaskoðun og hafði dæmalaust mikinn áhuga á þeim fuglum sem kenndar eru við rottur himinsins - þ.e. dúfum - og tók af þeim skemmtilegar myndir...

Trausti í bráðri smithættu...

Við gátum svo aðeins nýtt okkur starfskrafta hans því hann passaði Andreu fyrir okkur á miðvikudaginn, þegar það var frí í skólanum, eins og ætíð á miðvikudögum og áttu þau góðan dag í Disneylandi.

Það er nefnilega ALLTAF frí í ÖLLUM leik- og grunnskólum á miðvikudögum. Ótrúlegt - ekki satt!? Svo er skóli hálfan laugardaginn. Ég veit ekki hvaða hálfvita fannst það sniðugt þegar þetta kerfi var sett á - en hér er hin almenna skoðun sú að ekkert sé eðlilegra. Ég eiginlega trúði þessu ekki þegar ég áttaði mig á þessu en þegar ég ræddi þá skoðun mína við vini og vandamenn hér í landi og sagði frá hinu sniðuga alþjóðlega kerfi, þar sem börnin eru í skóla á sama tíma og foreldrarnir eru vinnu, voru viðbrögðin oftast á sama veg: "Já, ykkar kerfi er greinilega hugsað fyrir foreldrana - aumingja börnin, þau hljóta að vera dauðuppgefin eftir vikuna!" Vissulega - í ídeal heimi - þar sem annað foreldrið er í fríi á miðvikudögum - er þetta frábært fyrir börnin. En í alvöru heiminum vinna flestir foreldrar báðir úti alla virka daga og þá verður miðvikudagurinn eilífðar hausverkur! Staðan hér er þannig að margar franskar konum vinna 80% vinnu og eru alltaf í fríi á miðvikudögum. Frekar næs - ekki satt? Kannski er þetta kerfi bara alveg brilljant? Ég get hins vegar ekki leyft mér að sleppa vinnu á miðvikudögum og þeir halda því áfram að vera vandamál. En Trausti reddaði þessum :D

17 maí 2006

Tjeitjei bíljets!


"Tjeitjei bíljets. Tjeitjei bíljets".
Þessa setningu hef ég ósjaldan heyrt á götum Parísar síðastliðna viku. Í fyrstu gat ég nú ekki ímyndað mér hvað hún ætti að þýða... þetta var alls ekki franska, ekki enska, spænska, þýska eða danska... En þeir sem kölluðu þetta voru ansi breskir í útliti og eftir smátíma áttaði ég mig á því að þetta voru Bretar sem voru að reyna að tala frönsku. Það sem þetta átti að þýða var: "Mig vantar miða", sem á frönsku mun vera "Cherche billets", berist fram "sjersj bíje" - sem er ansi langt frá þessari afbökuðu "frensku".
Ég komst svo að því að viðkomandi voru að leita sér að miðum á Arsenal-Barcelona, sem er úrslitaleikurinn í ... Evrópsku meistaradeildarkeppninni??? Er ekkert sérstaklega inni í þessu. Fékk símtal í síðustu viku og var beðin PLÍS um að redda nokkrum nýríkum vip Íslendingum lúxushótelgistingu - en þeir voru víst að fara á þennan sama "tjeitjeibíljets" leik.
Leikurinn fer fram í kvöld og stemningin hér á götum úti er engu lík. Breskar og spænskar fótboltabullur út um allt og tilhlökkunin leynir sér ekki.
Ég hefði nú ekkert á móti því að fara á leikinn, veit reyndar ekki með hverjum ég ætti að halda með... Hef verið frekar skotin í Thierry Henry hjá Arsenal síðan ég spjallaði við hann á Laugaveginum '98 - en á hinn bóginn er ég tengd Barcelona fjölskylduböndum...
En það er enn hægt að nálgast miða... á 80.000 krónur!!!

08 maí 2006

Paradís á jörðu??


Við heimsóttum heimili og garða málarans Claude Monet í dag og ég er ekki frá því að það sé einn fallegasti staður sem ég hef verið á. Ég var sennilega um 12 ára þegar ég gaf foreldrum mínum Monet dagatal í jólagjöf. Þá vissi ég reyndar ekki að móðir mín er á móti stórum dagatölum - held reyndar að hún hafi verið glöð með dagatalið, enda var það einstaklega fallegt, og útskornar myndirnar hanga enn á skrifstofu föður míns. Síðan þá hefur Monet verið einn uppáhalds málarinn minn og ég hef lengi látið mig dreyma um staðinn þar sem þessi mynd var máluð á:


Og viti menn - ég var þar í dag. Þvílík ró og fegurð. Monet hlýtur að teljast einn af 10 bestu málurum sögunnar og það spillti ábyggilega ekkert að hafa þetta fyrir augum...