La vie en rose...

...glefsur úr lífi íslensk-franskrar fjölskyldu í úthverfi Parísarborgar...

29 janúar 2006

Sunnudagur til sælu

Á sunnudögum gerist ég iðulega með eindæmum myndarleg húsmóðir.

Ég byrja á því að teyma alla fjölskylduna á markaðinn sem settur er upp á ráðhússtorginu tvisvar í viku. Þangað mæta bændur eldsnemma á morgnana, setja upp tjöldin sín og raða vörum sínum upp. Þarna fást svo ferskustu ávextirnir og grænmetið sem til eru þann tíma ársins og bændurnir leggja sig alla fram við að veita fyrsta flokks þjónustu.

Mér finnst æðislegt að versla á markaðnum og byrgja mig upp af ávöxtum og grænmeti fyrir vikuna. Ég kem yfirleitt heim með mörg kíló – sem ég borga nokkrar evrur fyrir. Í dag vantaði mig svo ferska steinselju og ég fékk hana “auðvitað gefins” eins og bóndakonan orðaði það (risabúnt sem hefði kostað 600 kr. heima – ágætis bónus það).

Andreu finnst líka frábært að fara á markaðinn, þangað fer hún mjög stolt á flotta þríhjólinu sínu og hún hjálpar svo til við að bera jarðaberin og gulræturnar heim - aftan á hjólinu J. Svo fær hún alltaf að fara í hringekjuna sem er þarna á torginu og það vekur ætíð mikla kátínu.



Nú þegar heim er komið hefst ég samstundis handa við að skera niður grænmetið og sjóða saman dýrindis grænmetissúpu fyrir vikuna – elda svo auðvitað kvöldmatinn á sama tíma, svona úr því ég er í eldhúsinu – og í þetta skiptið gerði ég á sama tíma tilraunarköku: Banana-gulrótar-kakó-kanilköku, alls ekki svo vond og bráðholl auðvitað.

Fyrirmyndarhúsmóðir eða hvað??!

5 Comments:

At 7:17 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Lilja
Ég öfunda þig ekkert smá að hafa svona grænmetis og ávaxtatorg rétt hjá heimili þínu. Það hlýtur að vera æðislegt og örugglega skemmtilegra en að kaupa ávexti og grænmeti í Bónus sem skemmast innan við 3ja daga.
Kveðja Helga L

 
At 10:13 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mikið er ég nú glöð að heyra hvað þú er myndarleg húsmóðir, gullið mitt. Auðvitað vissi ég það alltaf - en það er betra að lesa það líka:-)
koss og knús
mamma

 
At 10:47 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst þetta nú ekkert merkilegt - finnst fátt betra en að borga morðfjár fyrir hálfskemmt grænmeti í Bónus... ;) Eða þannig ...

Fær maður uppskrift af hollu tilraunakökunni?

 
At 9:21 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Aujourd'hui j'ai mangé le raisin et ai bu l'eau

 
At 12:39 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ohh.. Eg vildi oska ad danirnir hefdu tru a fersku grænmeti. Vid faum venjulegast ekkert nema hrasalat med matnum, og ef vid faum ferskt grænmeti bragdast tad alltaf eins og flugnaeitur. Her virdist lika vera ad epli og mandarinur seu einu fáanlegu ávextirnir.. Tannig urvalid er ekki mikid :/

Kannski madur "skreppi" yfir til frakklands tegar skolinn er buinn? :) Annars erum vid ad fara tangad i skidaferd eftir rumar 3 vikur :)

Vid verdum bara i bandi :)

 

Skrifa ummæli

<< Home